Á Barðaströnd
Ég tók mér viku frí, fyrir þrem vikum síðan. Átti erindi til
Reykjavíkur og hittist það svo skemmtilega á að Matt var á leiðinni til
Íslands á svipuðum tíma þannig að ég fór og sótti hann til Keflavíkur.
Þaðan ókum við beint vestur og var förinni heitið til sunnanverðra
Vestfjarða. Framundan var frábært ferðalag um svæði sem mér hefur
alltaf þótt spennandi og var mikill hugur í okkur, enda ekki unnið í
verkefninu síðan í september 2009. Þá gat ég lítið verið með og ég var
orðinn mjög spenntur yfir að geta eytt í þetta nokkrum dögum. Renndum í
hlað á Eyrarhúsi í Tálknafirði þá um kvöldið eftir fínasta
myndatökudag, en við stoppuðum út um allt eftir að á Vestfirðina var
komið og lékum okkur svolítið með myndavélarnar. Birtan er ekki mikil
þessa dagana þó dag sé að lengja, en fyrir tæpum 3 vikum var birtan enn
minni en hún er í dag, maður sér alveg daga muninn, sólin sást svo á föstudaginn. Sólin er merkileg á þessum tíma fyrir okkur því við höfum ekki séð
hana t.d á Ísafirði í 6 vikur. Bærinn minn vaknar svolítið við sólina :)
Skrímslasetrið
En þetta er ekki sagan af Ísafirði heldur 3 skemmtilegum sjávarþorpum, Patreksfirði, Bíldudal&Tálknafirði.
Þegar
við komum á
Tálknafjörð, beið okkar hús sem hann Níels Ársælsson leyfði
okkur að gista í þessa daga sem við vorum á svæðinu og kunnum við honum
kærar þakkir fyrir.
Næsta morgun var haldið á
Bíldudal og
Skrímslasetrið skoðað, rætt við fjölskylduna, allavega þann hluta
hennar sem rekur sjoppuna/búðina/verslunina Vegamót og kíktum við á
Tónlistasafn Jóns Kr. Ólafssonar, Minningar melódíunnar. Hann Jón
Þórðarsson bauð okkur svo í kaffi í galleríinu sínu og sagði okkur frá ferð
sem hann ætlaði með okkur á sunnudeginum ef við gætum. Gengum líka aðeins
um bæinn og mynduðum fólkið, göturnar og húsin, jafnvel báta!
Þröstur og Lassi
Daginn
eftir skelltum við okkur á
Patreksfjörð og hittum þar fyrir
Þröst
Reynisson og spjölluðum við hann í dágóða stund á kaffistofu
áhaldahúsins þar í bæ. Síðan var haldið í rölt um bæinn og og hann
myndaður í þurru en léttskýjuðu veðri. Mikið meira komumst við ekki
yfir en jú mynduðum Þröst út á miðri götu í myrkrinu rétt áður en við
fórum. Lassi var með honum en það er leitarhundurinn hans, Flottur
hvutti hann Lassi og hörku model....
Nilli, Jón og Soffía
Á laugardeginum fórum við
svo í gönguferð með Jóni Þórðarsyni, Nilla, Soffíu og tíkinni Snátu.
Haldið var í átt að Arnarstapa og var fjaran gengin út Tálknafjörðinn.
Frábær ferð í alla staði og sáum við ýmislegt merkilegt á þessari leið
en þarna eru miklar minjar um gamlan búskap í Tálknafirði og má sjá þar
mjög mikið af minjum fyrri tíma. Svo komum við að Stöpunum sem eru
alveg sér kapítuli út af fyrir sig, en þetta er mjög falleg lítil
strönd með sandi og 2 flottum klettum standandi upp úr fjörunni.
Magnaður staður að sumri til að skoða, en vetrarlúkkið vara bara flott
líka og alveg þess virði að upplifa.
Kirkjan í Stóra-Laugardal
Heimferð var svo áætluð seinnipart sunnudags en um hádegið fórum við að skoða fjörurnar með Nilla og Jóni og einnig kirkjuna í Stóra-Laugardal. Mjög falleg kirkja sem var innflutt af norðmönnum og vígð árið 1907. Skelltum okkur svo í fjöruna við Kvígindisfell að skoða það sem heimamenn kalla Bæir en þar eru klettar, steinar og björg í allra kvikinda líki á gulri sandströndu. Stórkostlegt!
Skemmtileg ferð í alla staði!